Framakona

18.05.2007 12:41:52 / halla_luth

Síðasti dagurinn í Smáralind

Núna er komið að því, síðasti dagurinn í Smáralind, á mánudaginn mun ég hefja störf sem tengiliður í Söluveri niðri Ármúla. Það er alltaf gaman að takast á við eitthvað nýtt og mig hlakkar mikið til. Verður líka aldeilis viðbrigði að þurfa ekki að vera í endalausum samskiptum við kúnna allan daginn. Ég hætti líka að vinna um helgar og vinn bara 9-18 þannig að þetta verður svolítið mikil breyting fyrir mig, vonandi bara til hins góða. Get ekki beðið eftir að spreyta mig.
Svo á morgun ætlum við að ganga Hrísháls og vonandi að veðurguðirnir verði okkur góðir svo við njótum þess til fulls. Svo ætla ég að hafa það gott allan sunnudaginn, borða góðan mat og mæta endurnærð til vinnu á mánudagsmorgun kl. 9 en ekki 11 sem verður æðislegt.
Ég er alveg á fullu að plana sumarið, við ætlum á hestbak í júní, fara norður í júlí og reyna að vera sem mest á ferðinni og prufa nýja og skemmtilega hluti í allt sumar. Ég þarf að kaupa mér tjald :)


» 1 hafa sagt sína skoðun

17.05.2007 14:27:09 / halla_luth

Ætla að vera dugleg á helginni

Á laugardaginn ætlum við systur og pabbi að ganga Hríshálsinn, svo ætlum við að borða læri hjá kallinum. Svo erum við líka búnar að plana að fara á hestbak í júní. Planið er að lifa svolítið heilbrigðara lífi, hreyfa sig meira og reyna að passa upp á mataræðið. Sjúm svo til hvernig það gengur, hef samt alveg tröllatrú á okkur:)  Svo frétti ég að tengdapabbi er að gera við Bláma (bátinn sinn) svo að hann bíður mér kannski loksins út að sigla í sumar. Hann er búinn að tala um það í fjögur ár þannig að það verður kannski loksins að veruleika.


» 0 hafa sagt sína skoðun

15.05.2007 16:10:45 / halla_luth

Búin í prófum:)

Núna er ég búin í prófum og færist í nýju stöðuna á mánudaginn næsta þannig að það er allt að ske. Ég ætla ekki að vera í skóla í sumar heldur ætla ég að einbeita mér að nýrri vinnu og njóta þess að vera til. Fara í piknik á rúntinn og ferðast. Í heildina séð bara hafa það gott :)

» 0 hafa sagt sína skoðun

09.05.2007 12:10:55 / halla_luth

Tapa mér í prófum:S

Ég er að tapa mér í prófum en man svona eftir því öðru hvoru að það eru kosningar á næsta leiti. Finnst þetta hafa verið mjög döpur kosningabarátta, allir eru tilbúnir til að lofa en enginn er tilbúinn til að segja hvernig eigi að standa við loforðin. Eina sem að ég tek sérstaklega eftir með baráttuna er að Framsókn ætlar svo sannarlega að eyða sínum milljónum í sjónvarpsauglýsingar, er kominn með alveg nóg af þeim og græna kallinum.
Þetta gæti nú samt virkað á einhverja, Framsókn vill koma á óvart. Þeir mættu nú samt alveg fá að prufa að vera í stjórnarandstöðu í fyrsta sinn síðan.....alla vega langt síðan þeir hafa ekki verið í stjórn.

En þetta kemur nú allt í ljós á aðfaranótt sunnudag, ég mun alla vega fara á kjörstað og kjósa....ekki Framsókn.

 Annars er ég bara í próflestri og svoleiðis veseni en það verður nú búið á föstudag. Ætli ég taki mér samt ekki pásu á fimmtudagskvöld og horfi á Eirík í Helsinki. Vonandi að honum gangi vel....og að fólk kjósi rétt á laugardag, að minnsta kosti samkvæmt sinni samvisku.


» 1 hafa sagt sína skoðun

07.05.2007 11:47:00 / halla_luth

Bla bla bla bla bla

Ég er að reyna að vera dugleg að skrifa en það gengur ekkert sérstaklega vel. Reyni það nú samt sem áður. Var á Böðmó um helgina og fór í fermingu í Skálholti í gær. Veislan var haldin á Hótel Geysi og var glæsileg. Ætlaði að læra og læra í bústaðnum en helgin var eitthvað styttri en vanalega. Gat þó gert eitthvað.


» 0 hafa sagt sína skoðun

03.05.2007 11:41:02 / halla_luth

Eitt búið, þrjú eftir !!!

Núna er eitt prófið búið en þrjú eru eftir, vonandi að þetta gangi vel allt saman. Geri lítið annað núna en að liggja í bókunum og ætla vonandi að fara í bústaðinn um helgina því hvergi er betra að læra. Mæli nú kannski ekkert sérstaklega með því að vera að taka margar einingar í skóla með vinnu en það er nú alveg hægt að láta það virka. Sérstaklega ef maður á tillitsama vinnufélaga sem ég á nú alveg. Ætla að baka handa þeim köku þegar prófin eru búin (fer kannski bara í bakaríið og kaupi hana:D) Ætla alla vega að sýna þeim að ég kann að meta tillitsemina.

» 1 hafa sagt sína skoðun

28.04.2007 15:34:34 / halla_luth

Sumar sumar sumar

Búin að taka skref í átt að sumrinu, kominn á sumardekkin:) Grilla svo í kvöld með Brynju og fjölskyldu og það verður án efa mjög gott. Allt að nálgast sumrið, þarf bara að klára prófin þá verð ég í svaka sumar stuði8)8) með sólgleraugu:lol:

» 1 hafa sagt sína skoðun

27.04.2007 11:32:00 / halla_luth

Verð til aftur eftir 11. mai

Ég ætlaði bara að láta vita að ég verð ekki til aftur fyrr en seinni part dags 11. mai því þá er ég búin í prófum og fer vonandi að hægjast um hjá mér. Þá verður að minnsta kosti bara vinna en ekki vinna og skóli. Mig er farið að hlakka mikið til prófloka og sumarsins, ég kemst vonandi í nýju vinnuna sem fyrst og þá bíður mín helgarfrí...allar helgar í sumar, gaman gaman gaman. Ég verð að vinna þessa helgi, ætla samt að skreppa í Hveragerði í kvöld til að ná í sumardekk á nýja fína bílinn minn sem er Subaru Legacy. Er svo að fara að borða góðan mat hjá Brynju á morgun og ætla mér aldeilis að hafa það gott svona á milli þess sem að ég læri, læri, læri endalaust.....ætla mér að standa mig VEL:D


» 1 hafa sagt sína skoðun

19.04.2007 13:55:45 / halla_luth

Gleðilegt sumar

Gleðilegt sumar öll:D:D:D

Jæja núna skrifa ég loksins, var á búningaballi í gær, var pönkari, fílaði mig vel með túperað hárið og töff. Annars er ég bara búin að vera löt bæði við að skrifa og bara svona yfir höfuð er ég búin að vera löt. Er að komast í þriggja daga frí núna og vonandi tekst að kaupa bíl á þeim tíma þar sem micran okkar dó föstudaginn 13. Fer einmitt á selfoss á morgun með það í huga að kaupa bíl og vona bara að það gangi eftir. Segi fréttir leið og þær koma, bráðum á nýjum bíl.


» 2 hafa sagt sína skoðun

30.03.2007 12:42:22 / halla_luth

Viðburðarríkir dagar!!

Það er nú ýmislegt gengið á síðustu daga, sérstaklega í vinnunni hjá mér. Öllum að óvörum hætti María sem var verslunarstjóri hjá okkur og ekki er búið að ráða í hennar stöðu, ég mun án efa sakna hennar hérna í Smáralindinni. Svo var öðrum samstarfsmanni sagt upp og stendur til að ráða inn nokkra nýja. Miklar breytingar í gangi, á eftir að koma í ljós hvernig þær munu reynast. Við munum fá að láni verslunarstjórann í Ármúlanum, Heiðrek, sem er eðalmaður þannig að kannski rífur hann upp móralinn. Svo er móralinn náttúrulega skrítinn þar sem að breytingar eru alltaf eitthvað sem venja þarf sig við.

Vonum að það gangi vel og góða helgi :)


» 2 hafa sagt sína skoðun

28.03.2007 18:39:31 / halla_luth

Wilson Muuga

Við systurnar fórum með krakkana að skoða Wilson Muuga, gekk á ýmsu við að finna skipið en tókst á endanum þó. Komumst ótrúlega nálægt því og tókum mikið af myndum, núna fer alveg að líða að því að ég fari að setja myndir hérna inn. Í millitíðinni getið þið kíkt á myndirnar hjá Brynju á tenglinum hérna til hliðar.

» 1 hafa sagt sína skoðun

17.03.2007 12:26:29 / halla_luth

Gleymdi aðalfréttinni!!

Ég fékk stöðuna sem ég var að sækjast eftir þannig að eftir einhvern x-tíma þá verð ég tengiliður í Söluveri sem þýðir það að ég mun einungis þjónnusta innri viðskiptavini Símans en ekki þessa venjulegu "kúnna" eins og maður segir. Þá mun ég vinna niðri Ármúla og alltaf bara 9-18 og engar helgar. Það er ekki alveg komið á hreint hvenær ég byrja en það þarf að ráða í mína stöðu og svona áður en ég flyst:) Mjög spennandi að vera að byrja á einhverju nýju!!

» 2 hafa sagt sína skoðun

17.03.2007 12:23:12 / halla_luth

Takk takk takk

Ég þakka ykkur öllum kærlega fyrir að segja til ykkar, var samt að vona að fleiri hefðu áhuga á að skoða en veit samt að ég er ekki sú duglegasta að segja frá blogginu mínu. Langar pínu ekki að allir sem ég hef einhvern tímann hitt séu að forvitnast um mig:) Gaman samt að það kíki einhver á mig. Góða helgi og hafið það gott :lol: Ég ætla að gera það:D

» 0 hafa sagt sína skoðun

13.03.2007 14:33:56 / halla_luth

Smá tillaga:)

Sko, eins og þið sem þekkið mig þá er ég sjúklega forvitin manneskja sem gerir það að verkum að þegar ég sé að það eru 22 búnir að skoða bloggið mitt á einum degi þá er ég að bilast mig vantar svo að vita hver þið eruð sem eruð að forvitnast um mig??? Sem sagt tillagan er sú að þið kvittið fyrir ykkur í gestabók eða það sem enþá skemmtilegra er, kommentið á það sem ég er að tjá mig. Annars er það að frétta að ég fór í vinnuviðtal í morgun, er að sækja um flutning innan Símans, læt ykkur svo vita hvernig það kemur út. Vonum samt það besta:)

» 7 hafa sagt sína skoðun

12.03.2007 14:25:45 / halla_luth

Jæja þá er árshátíðarhelgin búin

Loksins loksins!!

Árshátíðin var semsagt á laugardag og loksins loksins var ég algjör prinsessa, fór í greiðslu, förðun og allt svakalega fínt og skemmtilegt:) Góður matur, góð skemmtun, það gerist varla betra. Var samt með þeim rólegri og fór heim þegar herlegheitin í Laugardalshöllinni voru búin og var þess vegna bara í fínum gír í gær, öfugt við marga skilst mér :) En þetta er víst allt meðfylgjandi en sem betur fer ekki hjá mér. Núna fara örugglega næstu vikur að snúast um "skandalana" sem voru á árshátíð, alla vega er það byrjað núna og það er bara mánudagur :lol:


» 1 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3
RSS tengill
Ýmislegt skondið og skemmtilegt